Fæðingardeildin innkallar Þór Saari

Þór SaariFæðingardeild Landsspítalans hefur innkallað Þór Saari vegna orða hans um íslenskan ferðaiðnað.  Sagði Þór að ekki væri hægt að þverfóta á helstu ferðamannastöðum landsins eða kaffihúsum miðborgar Reykjavíkur vegna ágangs ferðamanna.

Hjörður Hannesson yfirlæknir á fæðingardeild Landsspítala sagði í viðtali við fréttastofuna að læknar fæðingardeildarinnar þurfi að koma vitinu fyrir Þór og þess vegna hafi hann verið innkallaður.  "Við ætlum aðeins að krukka í honum og reyna að laga það sem aflaga hefur farið.  Hann gæti steypt heilt einbýlishús með steypunni sinni." sagði Hjörtur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband