Fimmtudagur, 11. október 2012
Fæðingardeildin innkallar Þór Saari
Fæðingardeild Landsspítalans hefur innkallað Þór Saari vegna orða hans um íslenskan ferðaiðnað. Sagði Þór að ekki væri hægt að þverfóta á helstu ferðamannastöðum landsins eða kaffihúsum miðborgar Reykjavíkur vegna ágangs ferðamanna.
Hjörður Hannesson yfirlæknir á fæðingardeild Landsspítala sagði í viðtali við fréttastofuna að læknar fæðingardeildarinnar þurfi að koma vitinu fyrir Þór og þess vegna hafi hann verið innkallaður. "Við ætlum aðeins að krukka í honum og reyna að laga það sem aflaga hefur farið. Hann gæti steypt heilt einbýlishús með steypunni sinni." sagði Hjörtur.