Miðvikudagur, 19. september 2012
Jesús steggjaður?
Fundist hefur texti á pappírssnifsi í sandöldum Mesópótamíu sem benda til þess að Jesús hafi verið steggjaður af vinum sínum stuttu fyrir brúðkaup sitt. Textinn, sem skrifaður er í sanskrít, gefur til kynna að lærisveinar Jesús hafi farið með hann á karaoke-bar þar sem hann mun hafa sungið lag sem heitir "My way" og kneifað áfengt jólaöl af miklum móð. Stendur á pappírssnifsinu "Eftir að hafa sungið My way hellti Jesús í sig jólaölinu...." "Jólaölið var þá aftur hellt í drykkjarkönnur og.... ", "...og enn var beðið eftir magadansmeyjunum og -strákunum..." og ".. en eru ekki allir í stuði?".
Vísindamenn telja pappírssnifsin ekki óyggjandi sönnun þess að Jesús hafi verið giftur, en telja líklegt að hann hafi skemmt sér vel þetta kvöld.