Fćrsluflokkur: Bloggar
Sunnudagur, 26. nóvember 2017
Tíst
Hin fréttastofan er komin á Twitter @HinFrettastofan. Ekkert variđ í hana.
Föstudagur, 2. júní 2017
ISIS lýsa yfir ábyrgđ á tillögu dómsmálaráđherra
Hryđjuverkasamtökin sem kenna sig viđ íslamska ríkiđ hafa lýst yfir ábyrgđ á tillögu Ingibjargar Andersen dómsmálaráđherra um dómara í landsrétti, sem samţykkt var á Alţingi. Í tilkynningu á fréttaveitu samtakanna kemur fram ađ yfirgangur vesturlanda í miđausturlöndum og freklegt inngrip ţeirra í stríđiđ í Sýrlandi hafi leitt til ţess ađ samtökin einbeiti sér nú ađ innviđum vestrćnna samfélaga, sérstaklega niđurbroti dómskerfa.
Ţriđjudagur, 23. febrúar 2016
Hvolpasveitin í utanríkisráđuneytiđ
Hvolpasveitin hefur veriđ ráđin til ađstođar Gunnari Braga Sveinssyni utanríkisráđherra. Munu hún áfram sinna verkefnum sínum á sviđi fjölmiđla og stunda starf sitt í ráđuneytinu eftir föngum. Gauti Geirsson, nýr ađstođarmađur ráđherra, verđur foringi hvolpasveitarinnar, en hann hefur leikiđ Foringja Róbert í sjónvarpsţáttum sveitarinnar. Sveitin hefur nú ţegar tekiđ til starfa og eitt af fyrstu verkefnum hennar var ađ koma í veg fyrir ađ vegabréf utanríkisráđherra lenti í ţvottavél.
Fimmtudagur, 7. janúar 2016
Sprengdu hurđasprengju
Komiđ hefur í ljós ađ Norđur-Kóreumenn sprengdu ekki vetnissprengju í gćr heldur hurđasprengju samkvćmt heimildum fréttastofu. Einnig eru vísbendingar um ađ Norđur-Kóreumenn ráđi yfir töluverđu magni af rokeldspýtum,teygjubyssum og ţumalskrúfum, ef marka má heimildarmann fréttastofunnar, sem er ekkert alltof oft.
Sunnudagur, 6. desember 2015
NASA birtir nýjar myndir af Plútó
Bandaríska geimferđastofnunin NASA birti í dag nýjar myndir af Plútó. Ein myndin sýnir hann glađlegan, önnur međ augun aftur en glađhlakkalegan og sú ţriđja sýnir hann á hlaupum međ tunguna úti. NASA hefur í hyggju ađ birta jafnvel fleiri myndir af Plútó ţegar fram í sćkir.
Fimmtudagur, 19. nóvember 2015
Hefur réttarstöđu bjána
Torfi Hannesson, fyrrverandi fulltrúi í viđburđadeild Glitnis banka á árinu 2008, er međ réttarstöđu bjána í Stímmálinu svokallađa. Mun Torfi hafa komiđ ađ málinu međ bjánalegum hćtti međ ţví ađ hella upp á kaffiđ á kaffistofu bankans dagana sem lániđ var rćtt sín á milli af yfirmönnum bankans. Ţótti kaffiđ úr hófi sterkt og gćti hafa haft áhrif á útlánastefnu bankans. Torfi vildi ekki tjá sig um máliđ í samtali viđ fréttastofu en var tilbúinn ađ svara spurningum skriflega.
Blm: Torfi, var kaffiđ svona sterkt hjá ţér
Torfi: Ţađ var frekar sterkt en vel drekkandi og ekki til ţess falliđ ađ auka áhćttu bankans
Blm: Hvađ heitir konan ţín og í hverju sefur hún?
Torfi: Sigrún og í náttfötum, af hverju?
Blm: Bara
Föstudagur, 15. maí 2015
Ólafur fćrđur í nýtingarflokk
Ólafur Hannesson pípulagningamađur hefur veriđ fćrđur úr biđflokki í nýtingarflokk af atvinnuveganefnd alţingis. Ólafur, sem er međ ofvirka ţvagblöđru og skilar öllum vökva sem hann innbyrđir á fáeinum mínútum, segist vera ósáttur ađ ekki hafi veriđ haft samráđ viđ sig um breytinguna. "Ég hef veriđ í biđflokki í nokkur ár og veriđ sáttur viđ ţađ en nú á ađ virkja mig og ţađ án samráđs. Ég hef helst til áhyggjur af morgunmigunni og ef mig langar ađ fá mér ađeins í tána, og hef ég tjáđ Jóni Gunnarssyni ţađ persónulega ađ ég nenni ekki ađ vera međ rafal hangandi utan á mér viđ slík tilefni" sagđi Ólafur ađ lokum.
Ţriđjudagur, 7. apríl 2015
Óli Skans í yfirheyrslu
Óli Skans dansari og altmuligmađur var kallađur í yfirheyrslu hjá Sérstökum saksóknara í dag í kjölfar yfirlýsingar Ingibjargar Kristjánsdóttur, eiginkonu Ólafs Ólafssonar sakbornings í Al-Thani málinu. Í dómsskjölum er minnst á Óla og fer tvennum sögum af ţví um hvađa Óla er veriđ ađ tala um. Ađ sögn Ingibjargar er ţessi Óli ekki hennar mađur. Óli Skans sagđist ekki vita á hverju hann ćtti von. "Ég get alveg eins hafa átt ţátt í Al-Thani málinu enda kom hann í tvo danstíma hjá mér snemma árs 2008, ţegar ţetta var allt byrjađ ađ fara til fjandans en allir svaka hressir. Hann borgađi fyrir tímana međ hlutabréfum í Kaupţingi, sem lánađi honum fyrir bréfunum."
Miđvikudagur, 15. október 2014
Sameiginleg yfirlýsing Eimskipa og Samskipa
Hinni fréttastofunni hefur borist sameiginleg yfirlýsing Samskipa og Eimskipa vegna rannsóknar Samkeppniseftirlitsins á meintum samkeppnisbrotum flutningafyrirtćkjanna:
Viđ höfnum alfariđ ađ hafa stađiđ ađ ţeim samkeppnisbrotum sem koma fram í kćru Samkeppniseftirlitsins og viljum árétta ađ viđ höfum aldrei átt neitt samstarf um nokkurn skapađan hlut.
Virđingarfyllst,
Eimskip/Samskip
PS: Eigiđ góđan dag
Ţriđjudagur, 1. júlí 2014