Föstudagur, 11. apríl 2014
Boðar heimsfrið og skotaskuldaniðurfellingar
Hannes Hannesson athafnamaður mun leiða lista Framsóknarflokksins í Reykjavík í komandi borgarstjórnarkosningum. Hannes, sem nýverið gekk í Framsóknarflokkinn og er 14. framsóknarfélaginn í Reykjavík, boðar heimsfrið og niðurfellingar á skotaskuldum. Hannes tekur við af Óskari Bergssyni sem fáir kannast við.
"Ég er alfarið á móti stríðum og mun þess vegna vinna að heimsfriði á kjörtímabilinu fái ég umboð kjósenda" sagði Hannes vígreifur á blaðamannafundi sem lauk rétt í þessu. "Einnig hafa skotaskuldir gleymst í umræðunni um skuldaniðurfellingar og mun ég fella þær allar niður". Hannes er 65 ára og býr með kindinni Sólveigu.
Föstudagur, 4. apríl 2014
Gróðurhúsaáhrif mest í Hveragerði
Fimmtudagur, 6. febrúar 2014
Skyndikynnavika Rauða krossins
Í næstu viku verður skyndikynnavika hjá Rauða kross Íslands og verða skyndikynnanámskeið alla daga vikunnar í húsnæði samtakanna við Efstaleiti. Er öllum sjálfráða einstaklingum velkomið á sækja námskeiðin og er aðganseyrir fallegt bros og frjálslegt fas. Samtökin tilkynntu fyrir skömmu að þau hefðu nú einkarétt á allri fræðslu sem byrji á "skyndi". Á vormánuðum eru fyrirhuguð skyndibita- og skyndilausnanámskeið.
Föstudagur, 31. janúar 2014
Fjórir starfsmenn Landsbankans ekki enn ákærðir
Fjórir starfsmenn gamla Landsbankans hafa ekki enn verið ákærðir fyrir markaðsmisnotkun, skjalafals, yfirhylmingar, fjárdrátt eða eitthvað annað ólöglegt. Eru þeir einu starfsmenn bankans sem ekki hafa lent á borði Sérstaks saksóknara en þeir störfuðu í mötuneyti bankans. Segjast þeir lifa á milli vonar og ótta um að þeir verði ákærðir fyrir "eitthvað aflandsfélagaafleiðukjaftæði" eins og einn þeirra komst að orði. "Við höfum ekki gert neitt ólöglegt nema að narta í nokkrar gullflögur og borðað afgangs rússakavíar sem skilinn var eftir á borðum mötuneytisins" sagði einn starfsmannanna. Hann vill ekki láta nafn síns getið en gefur þó upp að fyrsti stafurinn í nafni hans sé J.
Miðvikudagur, 22. janúar 2014
Sjálfstæðismenn stærstir í Reykjavík
Samkvæmt mælingum Raunvísindastofnunar eru Sjálfstæðismenn stærstir í Reykjavík en Framsóknarmenn minnstir. Meðalhæð Sjálfstæðismanna er um 2 metrar, næst stærstir eru fulltrúar Bjartrar framtíðar, um 6 tommur og 3 únsur en Framsóknarmenn eru minnstir, um 3 fet.
Miðvikudagur, 15. janúar 2014
Fór á æfingu hjá Daft Punk
Miðvikudagur, 1. janúar 2014
Tax-free dagar í fríhöfninni
Föstudagur, 23. ágúst 2013
Leikskólakennararnir fundnir
Leikskólakennararnir, sem vantaði til starfa á leikskólum borgarinnar, eru fundnir. Fundust þeir á eyjunni Ibiza við leik og söng og verða fluttir heim með fyrstu vél. Enn vantar 23 starfsmenn grunnskólanna en grunur leikur á að þeir séu í golfferð í Portúgal og er þeirra ákaft leitað.
Föstudagur, 12. apríl 2013
Sjálfstæðisflokkurinn fengi 100% fylgi
Sjálfstæðisflokkurinn fengi 100% fylgi landsmanna ef Jón Sigurðsson frelsishetja væri formaður flokksins samkvæmt könnun sem Þjóðskjalasafnið efndi til. Góð þátttaka var í könnuninni og svaraði slatti af fólki, en óákveðnir voru farnir. Ekki náðist í Jón við gerð fréttarinnar.
Sunnudagur, 7. apríl 2013
Ætla ekki að spila með bolta í sumar
Knattspyrnufélög ÍA og Stjörnunnar ætla ekki að spila með bolta í sumar á Íslandsmótinu í knattspyrnu í sumar. Miklar deilur hafa staðið um Adidas boltann sem nota á í leikjum sumarsins og leikmenn almennt óánægðir með tuðruna, og hafa ÍA og Stjarnan nú opinberlega hafnað henni. "Ætli við skokkum ekki bara um völlinn og tökum nokkrar teygjur" sagði Urriði Laxdal liðsstjóri Stjörnunnar í viðtali við fréttastofuna.