Miðvikudagur, 4. nóvember 2009
Gauja litla treyst best til að leiða þjóðina úr kreppunni
Í könnun sem Vélaverkstæði Hannesar vann fyrir Bændablaðið var nafn Gauja litla oftast nefnt þegar spurt var hver ætti að leiða þjóðina út úr þeim erfiðleikum sem hún stendur frammi fyrir. Gaui nýtur stuðnings um 30% þjóðarinnar en Davíð Oddsson kemur fast á hæla hans með 32%. Í næstu sætum á eftir koma Ólafur Laufdal 24%, og lánanefnd Glitnis 27%. Aðeins var hægt að velja nafn Davíðs Oddssonar.
Í úrtakinu voru 16, allt starfsmenn vélaverkstæðisins.