Decode hefur framleiðslu á Tab

Einar Káti

 

 

 

 

Decode hefur hafið framleiðslu á gosdrykknum Tab.  Einar Káti forstöðumaður Upplýsinga- og matvörusviðs Decode segir þetta rökrétt framhald á rekstri fyrirtækisins.  "Það hefur verið gríðarlegt tap á rekstri félagsins og við sáum hag okkar best borgið með því að markaðsvæða tapið og reyna að hafa eitthvað upp úr því" sagði Einar.

Búist er við að fyrstu vörusendingarnar berist sjoppum og stórmörkuðum á næstu dögum.  "Fyrsta sendingin er uppseld og aðeins örfáar dósir óseldar í annarri pöntun" sagði Einar Káti.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband