Mánudagur, 17. nóvember 2008
Sagði sig á þing fyrir Framsóknarflokkinn
Þorfinnur Ingjaldsson klæðskiptingur hefur sagt sig á þing fyrir Framsóknarflokkinn. Þorfinnur var áður óflokksbundinn en hefur verið gagnrýndur á vinnustað sínum fyrir klæðaburð og óvenjulegar skoðanir um jafnrétti kynjanna.
"Ég ákvað að axla ábyrgð á ummælum mínum um að konur ættu helst að bíða eftir manni sínum á rúmstokknum eða við eldavélina með heita jólaköku og kakó" sagði Þorfinnur og um leið og hann skráði sig sem þingmann hjá skrifstofustjóra Alþingis. Þorfinnur verður 1. þingmaður Miðhálendis.