Nýburar skráðir á vanskilaskrá

Álfheiður Unnarsdóttir hjá LánstraustiBörn sem hafa fæðst eftir að bankakreppan skall á, hafa verið skráð á vanskilaskrá við fæðingu af Lánstrausti.  Hefur starfsmaður Lánstrausts verið með aðstöðu á fæðingardeild Landsspítalans og verið viðstaddur sumar fæðingarnar.  Hann grandskoðar jafnframt fæðingartölur af landsbyggðinni og færir alla nýbura til bókar.  Eru börnin skráð í vanskilaskrá sem drengur/stúlka ásamt fæðingardegi og -tíma.  Með sjálfvirkri tölvutengingu við Hagstofu Íslands breytist skráningin um leið og börnin eru nefnd.

Að sögn Álfheiðar Unnarsdóttur, blaðafulltrúa Lánstrausts, eru nýburar skráðir á vanskilaskrá svo jafnræðis sé gætt.  "Jafnræðisreglan þarf að gilda í þessu sem öðru.  Skuldir Íslendinga eru miklar og það þurfa allir að axla byrðar.  Nýburar, rétt eins og við hin, skulda eins og skrattinn þótt ég voni að þeir gangi á Guðsvegum" sagði Álfheiður.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband