Þriðjudagur, 28. október 2008
IceClean salernispappír framleiddur úr íslenskum peningaseðlum
Breska framleiðslufyrirtækið Lotus hefur hafið framleiðslu á salernispappír, IceClean, þar sem hráefnið er íslenskir peningaseðlar. Að sögn Alistair Luvya framleiðslustjóra Lotus hefur framleiðslan mikla hagræðingu í för með sér enda eru íslenskir peningaseðlar ódýrasti pappír sem völ er á. "Þetta er ekki sérlega mjúkur pappír en ég veit að breskir neytendur láta sig hafa það í ljósi atburða undanfarinna vikna" sagði Alistair.
IceClean fer á markað í Bretlandi á næstu dögum og er fyrsta framleiðsla uppseld.