Vörumerkið ICESAVE til sölu í Bretlandi og Hollandi

Icesave

Landsbanki Íslands hinn síðari, hefur ákveðið að selja vörumerkið ICESAVE, en vörumerkið fer aðeins á markað í Bretlandi og í Hollandi.  Ekki fæst uppgefið hjá bankanum hvaða verð er sett á vörumerkið en það mun ekki vera hátt.

"Við gerum okkur grein fyrir að við fáum ekki mikið fyrir vörumerkið, kannski fyrir pylsu og kók.  Sýnileiki okkar var mikill í þessum löndum og þess vegna setjum við það á markað þar.  Sjálf borða ég ekki pylsur" sagði Álfheiður Ingjaldsdóttir, forstöðumaður viðburðasviðs bankans.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband