Föstudagur, 10. október 2008
Ástríkur galvaski í Seðlabankann
Ástríkur galvaski hefur verið ráðinn seðlabankastjóri frá og með deginum í dag. Ástríkur hefur um árabil verið gjaldkeri Gaulverjabæjar í Gallíu, smáhéraði í Frakklandi. Líklegt þykir að Steinríkur og Sjóðríkur seiðkarl fái sæti í framkvæmdastjórn bankans.
Samkvæmt heimildum fréttastofu mun Davíð Oddson taka við morgunleikfiminni í Ríkisútvarpinu.