Miðvikudagur, 21. maí 2008
Hvítrússnesk feðgin í stjórn FL Group
Hvítrússnesku feðginin Grigorz Jutschenko og Ludmila Jutschenko hafa verið kosin í stjórn FL Group.
Félagið er um það bil að fara af markaði og í fréttatilkynningu FL Group eru Grigorz og Ludmila tekin inn í stjórnina núna til þess að styrkja innviði félagsins. "FL Group hefur verið að selja í félögum sem ekki lúta að fjárfestingarstefnu FL Group og þess vegna munu Grigorz og Ludmila styrkja innviði félagsins mikið. Þau eru gamalreyndir fjárfestar og eru sérfræðingar í að finna arðvænleg fjárfestingartækifæri í óskráðum eignum sem fellur sérlega vel að fjárfestingarstefnu félagsins"