Þriðjudagur, 29. apríl 2008
Kvenfélag Rangæinga semur við grískan sæðisbanka
Kvenfélag Rangæinga er að hefja innflutning á grísku karlmannssæði. Mun fyrsta sending berast til landsins með haustinu en kvenfélagið hefur skrifað undir bindandi kaupsamning við grískan sæðisbanka í Þessalóníku.
Í tilkynningu kvenfélagsins segir að þótt rangæskir karlmenn séu upp til hópa ekki ólaglegir og til einhvers gagns, vilja meðlimir félagsins fá meiri þokka og fríðleika í gen Rangæinga. "Með þessu erum við að auka fjölbreytileika og fjölga valkostum kvenna í sýslunni til fjölgunar á mannkyni" segir ennfremur.