Mánudagur, 28. apríl 2008
Ánamaðki sýnt banatilræði
Ánamaðki í Hlíðarhverfi var sýnt banatilræði um hádegisbilið í gær. Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn af lögreglu en sleppt eftir yfirheyrslu. Ánamaðkurinn fékk aðhlynningu fyrst í stað af ungri dóttur tilræðismannsins og var líðan hans eftir atvikum áður en hann hvarf ofan í kartöflugarð fjölskyldunnar.
Tilræði gegn ánamöðkum hefur farið fjölgandi og nú þegar stangveiðitímabilið gengur í garð er búist við hörðum mótmælum ánamaðka. Samkvæmt upplýsingum sem borist hafa fréttastofunni munu ánamaðkar bera saman bækur sínar með flutningabílstjórum á næstu dögum og jafnvel er búist við að ánamaðkar loki helstu samgönguæðum borgarinnar með hóplegu. Hinir tvíkynja hryggleysingar eru vel í stakk búnir að takast á við lögreglu þar sem piparúði hefur engin áhrif á skynfæri þeirra.