Mánudagur, 14. apríl 2008
Jarðboranir hefja boranir í nef
Jarðboranir hafa í fyrsta skiptið borað í nef, en hingað til hefur félagið einbeitt sér að borunum í jörð í leit að vatni eða jarðvarma.
Ástvaldur Jóakimsson er mannauðsstjóri Jarðborana. "Þessi hugmynd kviknaði hjá okkur þegar einn starfsmaður okkar fékk heiftarlegar blóðnasir eftir hafa borað linnulaust í nefið á sér í fjórar klukkustundir. Hann var löngu búinn að tæma nefið af hori en vildi meira og þetta vakti upp spurningar um hvort eftirspurn væri eftir fagmannlegum borunum í nef einstaklinga, enda fellur það vel að slagorði félagsins, "við opnum þér auðlindir"".
Hægt er að panta borun hjá Jarðborunum í gegnum netfangið boruminef@jardboranir.is.