Tekin með 2kg af hreinu gardínuefni í Leifsstöð

Gardínuefni

Kona á sexturgsaldri var tekin með tvö kílógröm af hreinu gardínuefni í Leifsstöð í gærdag.  Konan hafði falið efnið í ferðatösku sinni.  Efnið er afar hreint og er talið að götuvirði þess sé um þrjú þúsund krónur.

Konan vakti grunsendir hjá tollverðum á Keflavíkurflugvelli þegar hún keypti þrjá Toblerone pakka af stærstu gerð í fríhöfninni, en það mun vera afar sjaldgæft.  Gardínuefni hefur ekki fundist áður í leit tollvarða.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband