Kína lýsir yfir áhyggjum af heimsókn Stokkseyrings á Blönduós

Wen Jiabao forsćtisráđherraRáđamenn í Peking hafa lýst yfir áhyggjum af heimsókn Stokkseyringsins Péturs Ingvaldssonar til vinar síns á Blönduósi, Sigurjóns Yngvarssonar. 

Í fréttatilkynningu frá utanríkisráđuneyti Kína segir ađ heimsókn Péturs sé gróf afskipti af kínverskum innanríkismálum og ađ Pétur sé leynt og ljóst ađ reyna ađ kljúfa Kína í herđar niđur.  "Stokkseyringar eru pólitískir útlagar sem fela sig á bak viđ suđurlandsundirlendiđ og ţokkalegan veitingastađ.  Heimsókn Péturs til Blönduós er atlaga ađ fullveldi kínverska heimsveldisins og verđur máliđ tekiđ fyrir í öryggisráđi Sameinuđu ţjóđanna, nema ađ Pétur gefur sig fram viđ kínverska sendiráđiđ í Reykjavík án tafar.  Verđur ţá tekiđ á máli hans af mildi."

Pétur sagđist undrandi á viđbrögđum Kínverja en sagđist ekki ćtla ađ hćtta viđ heimsóknina.  "Ég veit ekki í hvađa heimi ţessir menn eru en ţađ kemur ekkert í veg fyrir ađ viđ Sjonni fáum okkur brennivínstár og segjum gamansögur" sagđi Pétur.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband