Þriðjudagur, 18. mars 2008
Yfirdýralæknir aðhefst ekkert vegna stöðu krónunnar
Í morgun barst tilkynning frá Yfirdýralækni um að embættið hyggðist ekki grípa til neinna aðgerða vegna gengisfalls krónunnar. Í tilkynningunni segir að embættið muni ekki leggja til að meiri eða minni dýralækningar muni eiga sér stað þrátt fyrir að krónan hafi verið í frjálsu falli undanfarnar vikur.
Ennfremur segir í tilkynningunni að þótt fjármálaráðherra sé dýralæknir hafi embættið ekki beitt sér í fjármálum ríkisins nema að litlu leyti, embættið hafi tekið skortstöðu í Softís fyrir 12 árum en hafi, síðan þá, ekki beitt sér á fjármálamörkuðum.