Óðaverðbólga geisar í Hrútafirði

Verðbólga í Hrútafirði hefur hækkað mikiðGríðarleg verðbólga mælist nú í Hrútafirði.  Nú í morgunsárið mældist hún 45% sem er 10 prósentustigahækkun frá í gær og samsvarar tíföldu viðmiði Seðlabankans.

Mikil óánægja hefur ríkt í firðinum vegna launahækkana bankastjóra Seðlabankans og hafa Hrútfirðingar nú tekið höndum saman um að vinna gegn áformum bankans um að halda verðbólgu í skefjum.  Eitthvað mun vera um leynilega seðlaprentun ásamt því að lánastofnanir í firðinum hafa lækkað vexti allt niður í 1%.  Spáð er um 100% verðbólgu þegar líður á daginn sem yrði hæsta verðbólga sem mælst hefur í nokkrum firði innan OECD.

Að sögn Trausta Orrasonar hjá greiningardeild Glitnis kemur þessi þróun í Hrútafirði peningamarkaðnum á óvart en búast mætti við áframhaldandi sveiflum á gengi krónunnar.  "Gengi krónunnar hefur sveiflast, er að sveiflast og mun sveiflast" sagði Trausti en vildi ekki tjá sig um verðbólguhorfur í Hrútafirðinum, enda var hann ekki viss um hvar hann væri.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband