Föstudagur, 1. júní 2007
Liðsmenn Spaugstofunnar stoppaðir upp
RÚV hefur samið við Sigurbjörn Tringsted uppstoppara um að stoppa upp liðsmenn Spaugstofunnar. Samningurinn nær til allra leikara í þáttunum vinsælu, kvikmyndatökufólks og leikbúningahönnuða. Áætlað er að verkinu muni ljúka fyrir jól, og er ætlunin að uppstoppað Spaugstofufólk verði til sýnis í Perslunni yfir jólahátíðina. Eftir jólin verður það sett á Víkingasafnið á sama stað.
Sigurbjörn er að vonum ánægður með samninginn en óttast að ekki hafi verið leitað samþykkis hjá öllu því fólki sem á að stoppa upp. "Það eina sem ég óttast er að ná fólkinu inn á vinnustofuna mína en RÚV hefur lofað mér Víkingasveitinni ef þess þarf" sagði Sigurbjörn. Sigurbjörn hefur fest kaup á sérstökum tækjabúnaði sem sniðinn er að uppstoppun á fólki og einnig hefur hann komið fyrir stórum blóðstoppurum á vinnustofu sinni. "Ég hlakka mikið til að fást við þetta stóra verkefni. Ég hef ekki stoppað upp fólk áður fyrir utan hana ömmu mína sem ég stoppaði upp í sveinsprófinu mínu", sagði Sigurbjörn að lokum.