Þriðjudagur, 22. maí 2007
Guðlaugur Þór boðar auknar rjúpnaveiðar
Guðlaugur Þór Þórðarson nýr heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra sagði fyrir stundu að sitt fyrsta baráttumál í embætti verður stórfelld aukning á rjúpnaveiði á Íslandi. Guðlaugur, sem barðist af mikilli hörku gegn rjúpnaveiðibanninu um árið, segir að skjóta þurfi mun fleiri rjúpur en áður til "..að stöðva rányrkju þessa vargs á þjóðargersemi okkar, berjalyngið.." eins og hann orðaði það.
Guðlaugur segir að skotveiði eigi vel heima innan síns ráðuneytis, enda geti skotvopn haft afgerandi áhrif á heilbrigði einstaklinga.