Þriðjudagur, 23. febrúar 2016
Hvolpasveitin í utanríkisráðuneytið
Hvolpasveitin hefur verið ráðin til aðstoðar Gunnari Braga Sveinssyni utanríkisráðherra. Munu hún áfram sinna verkefnum sínum á sviði fjölmiðla og stunda starf sitt í ráðuneytinu eftir föngum. Gauti Geirsson, nýr aðstoðarmaður ráðherra, verður foringi hvolpasveitarinnar, en hann hefur leikið Foringja Róbert í sjónvarpsþáttum sveitarinnar. Sveitin hefur nú þegar tekið til starfa og eitt af fyrstu verkefnum hennar var að koma í veg fyrir að vegabréf utanríkisráðherra lenti í þvottavél.