Fimmtudagur, 19. nóvember 2015
Hefur réttarstöðu bjána
Torfi Hannesson, fyrrverandi fulltrúi í viðburðadeild Glitnis banka á árinu 2008, er með réttarstöðu bjána í Stímmálinu svokallaða. Mun Torfi hafa komið að málinu með bjánalegum hætti með því að hella upp á kaffið á kaffistofu bankans dagana sem lánið var rætt sín á milli af yfirmönnum bankans. Þótti kaffið úr hófi sterkt og gæti hafa haft áhrif á útlánastefnu bankans. Torfi vildi ekki tjá sig um málið í samtali við fréttastofu en var tilbúinn að svara spurningum skriflega.
Blm: Torfi, var kaffið svona sterkt hjá þér
Torfi: Það var frekar sterkt en vel drekkandi og ekki til þess fallið að auka áhættu bankans
Blm: Hvað heitir konan þín og í hverju sefur hún?
Torfi: Sigrún og í náttfötum, af hverju?
Blm: Bara