Föstudagur, 11. apríl 2014
Boðar heimsfrið og skotaskuldaniðurfellingar
Hannes Hannesson athafnamaður mun leiða lista Framsóknarflokksins í Reykjavík í komandi borgarstjórnarkosningum. Hannes, sem nýverið gekk í Framsóknarflokkinn og er 14. framsóknarfélaginn í Reykjavík, boðar heimsfrið og niðurfellingar á skotaskuldum. Hannes tekur við af Óskari Bergssyni sem fáir kannast við.
"Ég er alfarið á móti stríðum og mun þess vegna vinna að heimsfriði á kjörtímabilinu fái ég umboð kjósenda" sagði Hannes vígreifur á blaðamannafundi sem lauk rétt í þessu. "Einnig hafa skotaskuldir gleymst í umræðunni um skuldaniðurfellingar og mun ég fella þær allar niður". Hannes er 65 ára og býr með kindinni Sólveigu.