Mánudagur, 10. desember 2012
For beint frá býli
Tvö bóndabýli á Íslandi, Ingunnarstaðir í Reykhólahreppi og Brúárreykir í Borgarfirði, bjóða nú upp á for beint frá býli. Er um að ræða markaðsátak sem stutt er af Bændasamtökunum en bændur hafa lengi reynt að markaðssetja uppsafnaða for beint til neytenda í stað þess að selja hana í gegnum afurðastöðvar og aðra milliliði.
Samtökin "Skítur beint frá býli er ekki skítt", sem stofnuð voru af nokkrum bændum sem eiga mikið af uppsafnaðri for, hafa einnig haft sig mikið í frammi að undanförnu við að koma for sinni á framfæri og hafa meðal annars dreift myndum til fréttamiðla af "úrvalsfor", eins og segir í texta með myndunum. Viðbrögð neytenda hafa til þessa verið afar fáleg.