Föstudagur, 6. apríl 2012
Nicholson í Baugshreiðrinu
Jack Nicholson hefur þekkst boð Björns Bjarnasonar um að leika í Baugshreiðrinu, kvikmynd sem byggð er á bók Björns, Rosabaugur yfir Íslandi. Björn hefur skrifað handrit eftir bókinni og er myndin fjármögnuð af Alþingi og Evrópuvaktinni, en Björn mun fá kr. 100.000 fyrir hvert orð í myndinni frá Alþingi. Jack Nicholson mun leika Jóhannes Jónsson, en enn á eftir að ráða í hlutverk Jóns Ásgeirs og er orðrómur um að Chuck Norris taki að sér hlutverkið.