Föstudagur, 9. mars 2012
Landsdómur færður í Þjóðleikhúsið
Ákveðið hefur verið að færa Landsdóm úr Þjóðmenningarhúsinu í Þjóðleikhúsið og munu vitnaleiðslur verða á stóra sviðinu. Var þetta ákveðið af dómstjórum Landsdóms eftir að stemningin í dómsalnum hefur reynst mun léttari en áætlað var. "Það hefur skapast létt og skemmtilega stemning í dómsalnum og vitnisburðurinn hefur verið þrælskemmtilegur, minnir oft á góðan farsa eftir Dario Fo. Við erum flissandi eins og skólastelpur allan tímann. Þetta á heima á leiksviði" sagði Markús Sigurbjörnsson forseti hæstaréttar.
Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðleikhúsinu verður selt í sæti fyrir hverjar tvær klukkustundir á hefðbundnu miðaverði og hægt er að greiða með gjafakortum.