Ólafur Ragnar lýsir yfir sigri í þremur löndum

Ólafur Ragnar GrímssonHr. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands lýsti í dag yfir sigri í forsetakosningunum í Rússlandi, Íran og Jemen.  Kemur niðurstaðan á óvart en ekki var vitað að Ólafur Ragnar hafi verið í framboði í þessum löndum.  Ólafur sagði í viðtali við fréttastofuna að hann væri hissa á einn eða annan hátt.  "Hitt ber að nefna að ég hef ávallt verið í góðum tengslum við rússneska alþýðu og jemenska aðalinn.  Klerkarnir í Íran eru afar vandaðir allir saman.  Það er mjög merkilegt hvað þeir hafa með visku sinni og dugnaði barið eldmóðinn í íranska alþýðu og ég mun ekki láta mitt eftir liggja í þeim efnum. Ég hlakka til að vinna með þeim" sagði Ólafur. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband