Á móti alheiminum

Ögmundur JónassonÖgmundur Jónasson sagði í viðtali við fréttastofu að hann sé á móti alheiminum, skipulagi sólkerfisins og vill slíta sambandi við aðrar stjörnur.  Er Ögmundi sérstaklega umhugað um "marsáráttu" jarðarbúa og hugsanlegt samband við aðrar stjörnur í þessu sólkerfi sem öðrum.  Vill Ögmundur jafnframt stöðva allar fjárveitingar til rannsókna á stjörnufræði.  "Að vera í sambandi við aðrar stjörnur er ávísun á dagpeningagræðgi geimfara þegar þeir elta glerperlur og eldvatn annarra stjarna og ljóst er að ef líf finnst á Júpiter munu Júpiterbúar reyna að stjórna okkur með ofríki og fullveldi jarðarbúa í hættu.  Þar yrði eldvatn á boðstólum ef vatn er þar yfir höfuð" sagði Ögmundur. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband