Ragnar óhress með RÚV

Ragnar Önundarson

 

 

 

Ragnar Önundarson sagði í samtali við fréttastofuna að hann væri mjög óhress með frétt RÚV s.l. laugardag þar sem viðtal var tekið við hann í kjölfar afsagnar hans hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna og hjá Framtakssjóði Íslands.  Sagðist hann ekkert hafa efnislega út á fréttina að setja en að hann hafi beðið fréttamanninn um að eyða fréttinni.  "Ég bað hana að eyða fréttinni í öllum mögulegum hólfum, inn, út, aftan og framan, en hún gerði það ekki, truntan sú.  Hún ætti að íhuga að segja starfi sínu lausu.  Það sama má segja um kvikmyndatökumanninn.  Hann var órakaður og illa til hafður" sagði Ragnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband