Alþjóðlegur baráttudagur bankastjóra

Höskuldur Ólafsson er til í slaginn

Í dag er alþjóðlegur baráttudagur bankastjóra undir yfirskriftinni "Bankastjórar eru líka fólk".  Munu banka- og sparisjóðsstjórar safnast saman við Austurvöll í dag kl 16 og minna á bág kjör bankastjóra á Íslandi og út um allan heim. 

Höskuldur Ólafsson bankastjóri Arion banka skipulagði mótmælin og býst hann við fjölmenni til stuðnings bankastjórum.  "Okkar tími er kominn, aftur.  Við viljum auka skilning umheimsins á störfum okkar og ábyrgð.  Nú er mál að linni" sagði Höskuldur og frumsýndi nýja mótmælaskiltið sitt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband