Mánudagur, 28. febrúar 2011
Eiður fékk að spila
Eiður Smári Guðjohnsen fékk að taka í spil um helgina á spilakvöldi átthagafélags austur skaftfellinga í Húnvetningabúð um helgina. Eiður var heiðursgestur á spilakvöldinu en fékk ekki að spila framan af kvöldi, enda öll borð þéttsetin, og Eiður ekki verið í góðu líkamlegu félagsvistarformi. Undir lokin fékk Eiður að spila nokkur spil en setti ekki mark sitt á þau.