Laugardagur, 29. janúar 2011
Hundur Hannesar kyrrsettur
Hundur Hannesar Smárasonar, Labrador tíkin Vafningur, hefur verið kyrrsett af sérstökum saksóknara. Tíkin hefur verið skilgreind sem óefnisleg eign Hannesar og hafa fulltrúar saksóknara beðið hana um að vera kjura, og nú undir kvöld var hún grafkjur. Vafningur verður 3 ára í maí og hefur ekki stöðu grunaðs hunds.