Mánudagur, 17. janúar 2011
Fyrsta ferð til Þórshafnar
Herjólfur mun sigla til Þórshafnar á morgun og verður fyrsta ferð úr Eyjum kl 7:30 og til baka kl 23:40. Verður þetta eina ferð dagsins samkvæmt tilkynningu frá Eimskipum, en mikil röskun hefur verið á ferðum Herjólfs að undanförnu. Búið er að dýpka höfnina á Þórshöfn með dýpkunarskipinu Deep Shit, en ætlunin er að Herjólfur sigli norður og niður næstu daga.