Mánudagur, 20. desember 2010
Ófriðarverðlaun Nóbels veitt
Ófriðarverðlaun Nóbels voru veitt í Osló í gær að viðstöddu margmenni. Verðlaunin að þessu sinni voru veitt kínverska innanríkisráðuneytinu "fyrir framúrskarandi ögrun og yfirgang" eins og segir í viðurkenningarskjali Ófriðarstofnunar Nóbels. Verðlaunahafinn fær 300 langdræga kjarnaodda og 2 tonn af sinnepsgasi í verðlaun.