Gefur aftur kost á sér

Ingi Björn AlbertssonIngi Björn Albertsson hefur ákveðið að gefa kost á sér í íslenska landsliðið í knattspyrnu á ný, en hann spilaði með íslenska landsliðinu á árunum 1971 - 1978.  Ingi Björn hefur leikið sextán landsleiki og skorað tvö mörk.

Í fréttatilkynningu frá Inga Birni kemur fram að ákvörðunin sé tekin að vandlega íhuguðu máli eftir leik íslenska landsliðsins við landslið Liechtenstein í kvöld, og eftir hvatningu barna og barnabarna sinna.  "Miðað við leikinn í kvöld kem ég sterkur inn í þetta lið" sagði Ingi Björn í tilkynningu sinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband