Miðvikudagur, 14. júlí 2010
Umboðsmaður Alþingis ræði málefni Magna
Björk Guðmundsdóttir og fleiri hafa afhent umboðsmanni Alþingis áskorun um að taka til gagngerrar endurskoðunar málefni Magna, söngvara Á móti sól. Að áliti hópsins hefur öll umræða um Magna ekki verið nægilega gagnsæ og frekast til umdeild. "Það er gríðarlegt hagsmunamál fyrir íslensku þjóðina að afsala sér ekki eignaréttinum á honum Magna, sem sló eftirminnilega í gegn í Rockstar Supernova og var að gefa út plötu í Bandaríkjunum. Magni er óttalegt krútt og það er ómetanlegt fyrir börn okkar og komandi kynslóðir að fá að njóta hans" segir í yfirlýsingunni.