Móri mun leiða Icesave samninganefndina

MóriRíkisstjórn Íslands hefur fengið rapparann Móra, Magnús Ómarsson, til að leiða samninganefnd Íslands í komandi viðræðum við Breta og Hollendinga í stað Lee Buchheit.  

Auk Móra mun kærasta hans og Doberman hundur aðstoða hann við að stýra samninganefndinni en það var forláta rafbyssa, sem Móri fékk í sumargjöf frá kærustu sinni í fyrra, sem varð til þess að leitað var til Móra, en Lee Buchheit mun ekki eiga slíka byssu.  "Ég ætla að starta þetta sjitt með þessum bitsjes í Bretlandi og Hollandi og ef ég næ ekki þessu b-i-g disrespekti úr þeim verða þeir elektrikútaðir" sagði Móri á aðdáendasíðu sinni á Facebook.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband