Fćrsluflokkur: Bloggar
Ţriđjudagur, 22. júní 2010
Ótrúlegur árangur ristilskolunar
Ótrúlegur árangur hefur náđst í ristilskolunum á heilsuhćlum í Póllandi, segir Jónína Benediktsdóttir. "Árangurinn hefur veriđ stórkostlegur og ekki annađ hćgt ađ segja en ađ ţetta fólk hafi fengiđ nýtt líf" sagđi Jónína í viđtali viđ fréttastofu. Sigríđur Hannesdóttir er kampakátur viđskiptavinur Jónínu og segir međferđ Jónínu hafa fyllt hana bjartsýni á framtíđina. Sigríđur dvaldi í Póllandi í ţrjár vikur og undirgengst nokkrar ristilskolanir, vambminnkun og saltsýruţamb.
Ţriđjudagur, 22. júní 2010
Franska landsliđiđ ćfđi í gćr
Fimmtudagur, 10. júní 2010
Norđur-Kórea sýnir beint frá HM 1966
Knattspyrnuunnendur í Nođur-Kóreu geta kćst ţví norđur kóreanska ríkissjónvarpiđ mun sýna alla leiki beint á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu 1966 í nćsta mánuđi, en keppnin fer fram á Englandi. Kemur ţetta fram í fréttatilkynningu frá norđur-kóreanska innanríkisráđuneytinu. Verđa sýndir tveir til ţrír leikir á dag í ţremur litum, grćnum, rauđum og bláum.
Fimmtudagur, 3. júní 2010
Afhentu Jóni Gnarr ţáttaröđina Allt í drasli
Ţristarnir, hirđskáld Samfylkingarinnar, og samanstendur af Gísla Árnasyni, Eiríki Guđmundssyni og Helga Eysteinssyni, afhenti Jóni Gnarr ţáttaröđina Allt í drasli, sem sýnd var á Skjá einum fyrir fáeinum árum, í hádeginu.
Munu Gísli, Eiríkur og Helgi hafa skorađ á Jón ađ skođa ţćttina vel áđur en haldiđ verđur lengra međ viđrćđur Samfylkingar og Besta flokksins.
Miđvikudagur, 26. maí 2010
Náinn Manni
Ármann Höskuldsson hefur á undanförnum mánuđum orđiđ mjög náinn Jónasi Hannessyni, en ţeir hafa ţekkst í tíu ár. "Viđ vorum í sama bekk í menntaskóla og fyrst voru ţetta einungis augngotur, en nú hefur ţetta ţróast í eitthvađ stćrra og meira" sagđi Jónas Hannesson. "Hann Manni minn er orđinn mér mjög náinn".
Ţriđjudagur, 25. maí 2010
BUGL fugluđ í sumar
Ákveđiđ hefur veriđ ađ falla frá fyrirhuguđum lokunum á BUGL, Barna- og unglingageđdeild Landsspítalans í sumar, og ráđa starrahóp til ađ manna, eđa réttara sagt fugla hana í sumar.
Samkomulag hefur náđst viđ starrahóp sem haldiđ hefur sig ađ mestu í neđra Breiđholti, en forsprakki hópsins, Björgvin Ţrastarson, segist ánćgđur ađ samningar hafi náđst. "Viđ fáum ađ skíta ađ vild í húsinu, verpa í ţakskegginu nćsta vor og svo fáum nóg af kóríanderkrydduđum ánamöđkum og rúsínum í laun fyrir vinnuna, sem er nú ekki flókin" sagđi Björgvin í samtali viđ fréttastofu.
Miđvikudagur, 19. maí 2010
Slagsmál í Pólýfónkór
Slagsmál brutust út í morgun á ćfingu Pólýfónkórsins í Reykjavík í húsnćđi kórsins viđ Dunhaga. Grunur leikur á ađ slagsmálin séu tengd viđskiptum kórfélaga međ rotvarnarefni. Munu bassarnir í kórnum hafa orđiđ uppsiga viđ tenóra og barítóna međ ţeim afleiđingum ađ tveir bassar og ţrír tenórar ţurftu ađ njóta ađhlynningar á bráđavakt Landsspítalans í Fossvogi.
Pólýfónkórinn hefur lengi veriđ viđriđinn rotvarnarefni enda eru međlimir kórsins sérlega unglegir ađ sjá og frísklegir í framkomu.
Ţriđjudagur, 18. maí 2010
Elísabet Englandsdrottning ósátt viđ BBC
Ţriđjudagur, 18. maí 2010
Öskubuska á leiđ inn í ríkisstjórnina
Samkvćmt heimildum fréttastofu er Öskubuska á leiđ inn í ríkisstjórnina sem umhverfisráđherra, en núverandi ráđherra Svandís Svavarsdóttir mun víkja ţar sem henni hefur ekki tekist ađ stöđva gosiđ í Eyjafjallajökli.
Öskubuska, sem er hvít-rússnesk ađ uppruna og varđ frćg í samnefndu ćvintýri um miđja síđustu öld, er 146 ára gömul og hefur ekki gegnt ábyrgđarstarfi í stjórnmálum áđur. Hún vildi ekkert láta hafa eftir sér um starf umhverfisráđherra en sagđi ađ ef hún myndi einhverju ráđa vćri löngu búiđ ađ stöđva gosiđ í Eyjafjallajökli međ eldvarnarteppum enda hefđi umhverfismat á gosinu veriđ neikvćtt og aldrei fengist tilskilin leyfi fyrir ţví.
Ţriđjudagur, 11. maí 2010
Hannes Smárason nýr fréttastjóri Stöđvar 2
Hannes Smárason hefur veriđ ráđinn fréttastjóri Stöđvar 2 frá og međ deginum í dag. Hannes, sem stađsettur er í London, mun hafa starfsstöđ í London, en hann hefur enga reynslu af blađamannsstörfum.
Í samtali viđ fréttastofu sagđi Hannes sitt fyrsta verk vera ađ draga til baka allar neikvćđar fréttir stöđvarinnar, sem birst hafa á undanförnum árum, um FL Group, Northern Travel Group, Baug, Stođir, Fons, Feng, Glaum, Gleđi, Bónus, Hagkaup, Miklagarđ, 10-11, 12-13, Knattspyrnufélagiđ Fram, Kaupfélagiđ Fram, framvirka samninga, Oddaflug, og nýtt félag Hannesar, Brotlendingu. Hannes íhugar ađ draga til baka fréttir annarra fréttastöđva á nćstu dögum.