Færsluflokkur: Bloggar

Friðrik og Mary ánægð með tvíburana

Sverrir og Ármann Jakobssynir Danaprinsar

Friðrik krónprins Danmerkur og Mary krónprinsessa eru sögð í skýjunum yfir að hafa eignast tvíburana Ármann og Sverri Jakobssyni.  "Þeir eru svo fullir af lífi, og svo eru þeir svo mikil krútt.  Nú þurfum við að huga að tveimur í viðbót í okkar stóru fjölskyldu" sögðu kampakát hjónin í sínu fyrsta viðtali við fréttamenn. 

Ármann Jakobsson sagði þá bræður ekki hafa átt von á þessu.  "Við erum byrjaðir að pakka og hlökkum til að tilheyra þessari fallegu fjölskyldu". 


Allir með lottótölurnar réttar

Lottó

Allir voru með lottótölurnar réttar í drættinum á jóladag og mun hver og einn vinningshafi fá 6 krónur í sinn hlut.  Er þetta í fyrsta skipti sem allir hafa tölurnar réttar en flestir voru með þær réttar í jólavikunni 2007.  Samkvæmt starfsmanni Biskupsstofu, sem ekki vildi láta nafn síns getið, mun heppni lottókaupenda tengjast beint afmælisdegi Jesús Jósefssonar.


Ófriðarverðlaun Nóbels veitt

Við verðlaunaafhendingunaÓfriðarverðlaun Nóbels voru veitt í Osló í gær að viðstöddu margmenni.  Verðlaunin að þessu sinni voru veitt kínverska innanríkisráðuneytinu "fyrir framúrskarandi ögrun og yfirgang" eins og segir í viðurkenningarskjali Ófriðarstofnunar Nóbels.  Verðlaunahafinn fær 300 langdræga kjarnaodda og 2 tonn af sinnepsgasi í verðlaun.

Starfsmannapartý Biskupsstofu úr böndunum

BiskupsstofaSamkvæmt áreiðanlegum heimildum fréttastofu var umrætt starfsmannapartý, þar sem allt fór úr böndum og sagt er frá í fjölmiðlum í dag, árshátíð Biskupsstofu.  Mun árshátíðin hafa farið úr böndunum þegar messuvínið kláraðist á Hafnarkránni, þar sem árshátíðin var haldin. 

Heimildamaður fréttastofu, sem gjarnan vill láta nafn síns getið, mun hafa verið viðstaddur þegar starfsmenn Biskupsstofu snæddu saltkjöt og baunir fyrr um kvöldið og í framhaldinu hafi gripið um sig mikill þorsti hjá veislugestum, sem þeir vildu gjarnan slökkva með messuvíni, en það er eina áfengið sem starfsmenn Biskupsstofu fá frítt.  Birgðir Hafnarkrárinnar kláruðust fljótt og mun þá ókyrrð mikil hafa skapast sem ekki tókst að kveða niður, sem endaði með hópslagsmálum þar sem nokkrir urðu lemstraðir og einn missti tönn.

Eftir því sem fréttastofan kemst næst hefur öllum verið fyrirgefið.  


Guðjón vill Rooney

Guðjón ÞórðarsonGuðjón Þórðarson, nýr þjálfari BÍ/Bolungarvíkur kveðst ætla að athuga hvort Wayne Rooney, sem mun yfirgefa herbúðir Manchester United í janúar, vilji ganga til liðs við BÍ/Bolungarvík.  "Við erum með sterka bakhjarla eins og öndvegisfélagið Stím.  Það er kannski auðveldara um að tala en í að komast, en ef það er eitthvað sem fótboltinn hefur kennt mér þá er það að allt sé mögulegt.  Fótbolti er skrýtin tík, og vika í fótbolta er langur tími.  Fyrst ég fór vestur er ekki ósennilegt að Rooney sé tilbúinn að skoða möguleikana sem í stöðunni eru" sagði Guðjón.

Jón Ásgeir og Ingibjörg komast að samkomulagi við Arion banka

Jón Ásgeir og IngibjörgJón Ásgeir Jóhannesson og Ingibjörg Pálmadóttir hafa komist að samkomulagi við Arion banka um að þau séu kjánar og óvitar, en bankinn hafði farið fram á að þau yrðu álitin úrþvætti og kvartvitar.  Þegar Arion banki var inntur svara um eftirgjöf á karaktereinkennum Jóns Ásgeirs og Ingibjargar bar bankinn við bankaleynd, en gaf þó upp að orðin "asnar" og "fábjánar" hefðu verið í umræðunni. 

Áður hafði bankinn samið við tvíburana Arnar og Bjarka Gunnlaugssyni um að þeir væru sköllóttir.


Ásmundur Daði hliðarsjálf Timberlake

Justin Timberlake

 

 

 

Komið hefur í ljós að Ásmundur Daði Einarsson, þingmaður VG er hliðarsjálf bandaríska söngvarans og leikarans Justin Timberlake. 

Komst málið upp þegar Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir forseti Alþingi ljáði máls á því við þingheim að Ásmundur væri svo sláandi líkur Timberlake að ekki kæmi annað til greina en að Ásmundur færi í blóðprufu og skilaði af sér þvagsýni.  Áður en að því kom viðurkenndi Timberlake að hann væri í raun Ásmundur Daði og að hann hefði ákveðið þetta með stuttum fyrirvara.  Þetta hefði verið hugsað sem hvíld frá athygli fjölmiðla vestanhafs.  "Það var skemmtileg reynsla að sitja á elsta þjóðþingi heims en ég hefði viljað vera minna í sviðsljósinu.  Ég hlýt að vera athyglissjúkur eftir allt saman, en hvað sem öllu líður er ég er sammála Ásmundi að þetta ESB er bara rugl."


Brúðkaupsafmæli Aratúnshjóna

AratúnshjóninAratúnshjónin svokölluðu, Sigurður Stefánsson og Margrét Lilja Guðmundsdóttir, héldu upp á 20 ára brúðkaupsafmæli sitt, en þau voru gefin saman í Garðakirkju fyrir 18 árum.  Að því tilefni var haldin veisla á heimili hjónanna í Aratúni, en að sögn þeirra komu aðeins sex gestir í veisluna og þurftu tveir þeirra fljótlega frá að hverfa með skotsár á höfði og mjöðm. 

Jón stóri verkefnastjóri í Alþjóðasetri

Jón stóriJón stóri Hallgrímsson hefur verið skipaður verkefnastjóri Alþjóðaseturs, sem áður hét Alþjóðahús.   Jón stóri mun taka til starfa á morgun og munu verkefni hans snúast aðallega um aðlögun innflytjenda frá Afríku og Suður Ameríku. 

"Þetta leggst vel í mig" sagði Jón stóri í viðtali við fréttastofu.  "Ég sagði upp sem handrukkari og er á eins dags uppsagnarfresti, eins og tíðkast meðal handrukkara.  Það fór ein hnéskel í morgun og ég þarf að innheimta fíkniefnaskuld eftir hádegið.  Ætli ég kveðji ekki með kólumbísku hálsbindi sem væri mjög í takt við það sem ég mun taka mér fyrir hendur næstu misserin" sagði Jón stóri.


Seldu FÍH

Stjórn FÍHSkilanefnd Kaupþings hefur selt öll hlutabréf í Félagi íslenskra hljómlistarmanna í stað danska bankans FIH til danskra lífeyrissjóða.  Frá þessu er greint í dönskum miðlum í dag. 

Kaupendur hlutabréfanna komust að því fljótlega eftir undirritun að þeir höfðu eignast hlutabréf í FÍH þegar þeir fengu fax frá Birni Th. Árnasyni, formanni  félagsins, þar sem hann þakkar hinum nýju hluthöfum traustið og að hann, ásamt meðstjórnendum sínum, ætli að gera allt sem í hans valdi stendur til að auka veg og virðingu íslenskrar tónlistar.

Steinar Guðgeirsson, formaður skilanefndar Kaupþings, sagði í viðtali við fréttastofu að ósigur Fram gegn Haukum í gærkvöldi hefði verið ósanngjarn, svo ekki sé meira sagt.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband